Þann 25. júní næstkomandi verður haldið PRS mót á æfingasvæðinu okkar. Þetta mót er liður í PRS Iceland mótaseríunni sem hófst um nýliðna helgi.
Íslenska PRS mótaserían samanstendur af mótum sem haldin eru víðsvegar um landið hjá ýmsum skotfélögum og keppendur vinna sér inn stig fyrir hvert mót sem tekið er þátt í. Stig úr þremur bestu keppnum keppanda gilda við útreikning á lokastigum í seríunni. Í lok ársins verður svo sigurvegari PRS seríunnar krýndur. Allar nánari upplýsingar er að finna á facebooksíðu PRS Iceland.
Comments